Verkefnið samanstendur af fimm verkþáttum:
Verkþáttur 1: Stjórnun, samhæfing og samskipti
Verkþáttur 2: Viðhorf einstaklinga og samfélags gangvart verkefni
Verkþáttur 3: Öflun vistfræðilegrar upplýsinga og úttekt á veiðistjórunuarkerfum
Verkþáttur 4: Mótun söluleiða og nýrra tækifæra
Verkþáttur 5: Leiðbeiningar um uppbyggingu rekstrar/fyrirtækja frá grunni.
Verkþáttur 1 - Stjórnun, samhæfing og samskipti
Þessi verkþáttur snýst um daglega verkefnisstjórnun, samskipti milli samstarfs¬aðila, kynningar á niðurstöðum þess og mat á verkefninu sjálfu. Í þessu felst m.a. útgáfa á kynningarefni og umsjón með heimasíðu (www.north-hunt.org). Lögð er áhersla á að niðurstöður hvers verkþáttar sem og verkefnisins í heild sinni verði kynntar bæði hluteigandi aðilum sem og almenningi. Þetta verður m.a. gert í gegnum greinarskrif, fréttatilkynningar, málstofur og opna fundi.
Verkþáttur 2 - Viðhorf einstaklinga og samfélagsins gagnvart verkefninu
Samstarf hagsmunaaðila er eitt af lykilatriðum í sambandi við félagslega sjálfbærni í skotveiðitengdri ferðaþjónustu. Fyrir liggur að viðhorf ýmissa hagsmunaaðila hafa hingað til ekki farið saman og því er nauðsynlegt að skilgreina áherslumálin til að unnt sé að finna þeim farsæla lausn, t.d. sem lýtur að hóflegri og sjálfbærri nýtingu auðlindarinnar. Hagsmunaaðilum um þróun skotveiðitengdrar ferðaþjónustu hefur verið skipt niður í þrjá hópa, (1) landeigendur/frumkvöðlar, (2) stefnumótunaraðilar/-hagsmunasamtök og (3) íslenskir skotveiðimenn. Í þessum hluta verkefnisins verða tekin 20 eigindleg viðtöl meðal einstaklinga úr þessum hópum og þau greind eftir viðeigandi aðferðum. Áður en endanlegar niðurstöður rannsóknarinnar verða settar fram í skýrsluformi verða niðurstöður greiningar kynntar fyrir sérstökum hópi álitsgjafa úr röðum hagsmunaaðila. Hópurinn mun fara yfir niðurstöður greiningar, meta þær út frá sjálfbærnisjónarmiði og skilgreina aðkallandi verkefni er varða félagslega sjálfbærni. Að því loknu munu niðurstöður greiningar og niðurstöður hópsins vera settar fram í skýrsluformi.
Niðurstöður þessa verkþáttar munu veita mikilvægar upplýsingar til handa frumkvöðlum í starfsgreininni sem og stefnumótandi aðilum í byggðaþróun.
Efst á síðu
Verkþáttur 3 - Gagnaöflun til uppbyggingar smárra og meðalstórra fyrirtækja
Skotveiðitengd ferðaþjónusta er tiltölulega ný grein innan ferðaþjónustunnar þrátt fyrir að skotveiðar hafi verið stundaðar í áraraðir. Upplýsingar, sem eru af viðskiptalegum toga, eru af skornum skammti bæði hér á Íslandi og meðal annarra þátttökuþjóða verkefnisins. Slíkar upplýsingar, er varða markaðsmöguleika, efnahagslegan ávinning af skotveiðitengdri ferðaþjónustu og skilvirk veiðistjórnunarkerfi sem stuðla að vistfræðilegri sjálfbærni, skipta sköpun fyrir þróun starfsgreinarinnar. Markmið verkþáttar 3 er að safna þessum upplýsingum og meta viðskiptatækifærin í sjálfbærri skotveiðitengdri ferðaþjónustu á grundvelli þeirra. Þessi verkþáttur skiptist í þrennt, (1) úttekt á söluleiðum, (2) öflun stofnvistfræðilegra upplýsinga og úttekt á veiðistjórnunarkerfum og (3) greining á vaxtarmöguleikum greinarinnar.
ÚTTEKT Á SÖLULEIÐUM
Megintilgangur þessa verkhluta er að skoða fýsileika þess að selja skotveiðitengda ferðaþjónustu á norðurslóðasvæðinu en jafnframt að koma á sambandi milli ferðasöluaðila og frumkvöðla í atvinnugreininni með tilliti til vöruþróunar. Markmiðið er að þetta leiði til þess að starfandi sölu- og markaðsaðilar víðsvegar um Evrópu verði meðvitaðir um fyrirtæki í skotveiðitengdri ferðaþjónustu á norðurslóðum sem byggja starfsemi sína á hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar og komi til með að vísa viðskiptavinum sínum þangað í auknum mæli. Gerð verður vefkönnun sem verður lögð fyrir ferðasöluaðila (s.s. ferðaskipuleggjendur, ferðasamtök og söluskrifstofur) víðsvegar um Evrópu sem selja skotveiðitengda ferðaþjónustu í þátttökulöndunum fimm. Þetta er sameiginleg könnun meðal þátttökulandanna og koma erlendir samstarfsaðilar einnig að hönnun spurningalistans og er áætlað að sú vinna fari fram í mars 2009. Framkvæmd og úrvinnsla könnunarinnar er á ábyrgð RHA. Gert er ráð fyrir að niðurstöður könnunarinnar liggi fyrir í desember 2009.
ÖFLUN STOFNVISTFRÆÐILEGRA UPPLÝSINGA OG ÚTTEKT Á VEIÐISTJÓRNUNARKERFUM
Í þessum verkhluta verður aflað upplýsinga um allt sem lýtur að villtum dýrum og veiðistjórnun í þátttökulöndunum fimm. Má þar nefna stofnstærðir eftir svæðum og tegundum, hvernig talning fer fram og hvernig þéttleiki er metinn, þróun stofna og umfang veiða síðustu 5 árin og með hvaða hætti kvótar eru settir á og framkvæmdir, hvernig eftirliti með veiðinni er háttað og síðast en ekki síst hvaða upplýsingaöflun á sér stað á villtum dýrum. Leitast verður við að gera upplýsingarnar sem safnað verður saman aðgengilegar á þann hátt að þær nýtist til langtímastefnumótun í skotveiðitengdri ferðaþjónustu í hverju landi fyrir sig. Þetta er jafnframt gert til að frumkvöðlar hafi á aðgengilegan hátt skýrari línur um hvar bæði þolmörk dýrastofna og tækifærin liggja og þeim sé því ekkert til fyrirstöðu að starfsemi þeirra hafi vistfræðilega sjálfbærni að leiðarljósi. Öll gögn verða greind eftir svæðum og tegundum. Gögnin verða sett fram í töflum, myndum og texta eftir því sem við á.
GREINING Á VAXTARMÖGULEIKUM GREINARINNAR
Í þessum verkhluta er ætlunin að leggja mat á þau hagrænu áhrif sem verða af skotveiðum og ferðaþjónustu þeim tengdum. Gerð verður könnun meðal veiðimanna og skoðaðir útgjaldaliðir þeirra í kringum veiðarnar. Hannaður verður spurningalisti sem á að gefa glögga mynd á hvað skotveiðimenn skilja eftir á veiðisvæðunum og hvaða þjónustu þér nýta sér. Spurt verður um einstaka útgjaldaliði og þjónustu vegna veiðiferðar, þ.m.t. gisting, veiðileyfi og fæði. Eins verður spurt um útgjöld tengdum veiðileyfum, skotvopnum, ferðum á landi, legi og lofti, leiðsögn og aðgangi að veiðisvæðum. Jafnframt verður spurt um bráðina og nýtingu hennar, veiðisvæði, ásamt bakgrunnsbreytum s.s. aldur, kyn og búseta. Þetta verður gert til að gefa glögga mynd á hvað veiðimennirnir skilja eftir á svæðinu og hvaða þjónustu þeir nýta sér. Út frá þeim upplýsingum verður lagt mat á bein hagræn áhrif skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á hinum tilteknu svæðum. Niðurstöðurnar verða gerðar opinberar í greinargerð og með ritun greina en einnig verða þær gerðar aðgengilegar á heimasíðu verkefnisins.
Efst á síðu
Verkþáttur 4 - Mótun söluleiða og nýrra tækifæra
Aðkoma frumkvöðla og samvinna með hagsmunahópum er mikilvæg fyrir framgang verkefnisins og fyrir þróun skotveiðitengdrar ferðaþjónustu sem starfsgreinar í framtíðinni. Markmið verkþáttar 4 er að stuðla að samvinnu milli aðila í skotveiðitengdri ferðaþjónustu og þróa tengslanet fyrirtækja í starfseminni. Þetta er gert í því augnamiði að efla starfsemi fyrirtækjanna og þróa og prófa nýjar vörur í skotveiðitengdri ferðaþjónustu. Einnig verður haft áhrif starfsumhverfið með því að vinna með ráðgjafahóp til að tryggja að niðurstöður verkefnisins séu það sem skiptir máli fyrir þróun starfsgreinarinnar. Verkþáttur 4 skiptist í tvennt, (1) Samvinna frumkvöðla í starfsgreininni og (2) áhrif á starfsumhverfið.
SAMVINNA FRUMKVÖÐLA Í STARFSGREININNI
Stuðlað er að samvinnu frumkvöðla í skotveiðitengdri ferðaþjónustu með myndun veiðiklasa (e. development group) sem byggist á sameiginlegum áhuga frumkvöðlanna á þróun atvinnugreinarinnar í átt að sjálfbærni. Markmið klasans er að kanna hvernig hægt sé að nýta viðskiptatækifærin á hagkvæman hátt án þess að sjálfbærni lífríkisins sé stofnað í hættu. Klasinn skilgreinir eigin verkefni og geta þau t.a.m. snúið að vöruþróun sem tekur mið af hugsjónum North Hunt um sjálfbæra ferðaþjónustu tengdri skotveiði. Til þessa mun klasinn nýta sér þá sérfræðiþekkingu sem myndast í kringum verkefnið og niðurstöður úr rannsóknum annarra verkþátta. Hugmyndin er að sjálfbær skotveiðitengd ferðaþjónusta á norðurslóðum sé í fullu samræmi við vísindalegar ráðleggingar um nýtingu veiðistofna, sé atvinnuskapandi í dreifbýli og hafi jákvæð áhrif á viðkomandi samfélög og skilji arðinn eftir hjá heimamönnum.
ÁHRIF Á STARFSUMHVERFIÐ
Settur verður saman ráðgjafahópur (e. reference group) aðila sem hafa sterk tengsl við skotveiði og/eða ferðaþjónustu og hafa hagsmuna að gæta við þróun sjálfbærrar skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á Íslandi. Einn ráðgjafahópur verður starfandi í hverju þátttökulandi verkefnisins. Ráðgjafahópurinn verður umræðuvettvangur hagsmunaaðila til að varpa ljósi á mikilvæg sjónarmið og aðkallandi verkefni við þróun skotveiðitengdrar ferðaþjónustu sem viðskiptatækifæris í dreifbýli sem byggir á hinum þremur þáttum sjálfbærni (félagslegum, vistfræðilegum og efnahagslegum). Leiðir til að draga úr hindrunum fyrir frumkvöðlastarf í starfsgreininni verða teknar til skoðunar. Stofnað verður til tengsla milli ólíkra aðila innan greinarinnar til að efla starfsgreinina og viðskiptatækifærin, skynsama nýtingu auðlinda og sjálfbæra þróun. Ráðgjafahópurinn mun hittast þrisvar sinnum á ári (samtals sex sinnum á verkefnatímanum) og mun hann tengjast öllum verkþáttum verkefnisins og meta gæði niðurstaðna. Lokamarkmið ráðgjafahópanna er að þróa leiðbeiningar um sjálfbæra skotveiðitengda ferðaþjónustu sem viðskiptatækifæri í dreifbýli sem byggir á skynsamri nýtingu auðlinda í sátt við samfélagið. Þessar leiðbeiningar munu nýtast frumkvöðlum til að þróa sína starfsemi á sjálfbæran hátt.
Efst á síðu
Verkþáttur 5 - leiðbeiningar um uppbyggingu rekstrar / fyrirtækja frá grunni
Í augnablikinu eru upplýsingar um skotveiðitengda ferðaþjónustu mjög brotakenndar. Í North Hunt verkefninu mun mikið efni og þekking safnast um starfsgreinina sem getur nýst sem grunnur til fræðslu og starfsþjálfunar. Þessar upplýsingar eru sérstaklega mikilvægar fyrir fyrirtæki sem eru að hefja rekstur í skotveiðitengdri ferðaþjónustu. Markmið þessa verkþáttar er að lágmarka áhættu nýrra fyrirtækja með því að bjóða upp á sérsniðnar leiðbeiningar um starfsgreinina sem byggja á niðurstöðum verkefnisins. Við starfsþjálfun verður unnið með viðskiptahugmyndir fyrirtækjanna. Í verkþættinum verður einnig stuðlað að aukinni samvinnu milli frumkvöðla, fræðslustofnana og nýliða í starfsgreininni. Fræðsluefnið verður nýtt til námskeiðahalds og verða gerðar tilraunir með að halda slík námskeð á veraldarvefnum.