North Hunt

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Skotveiðitengd ferðaþjónusta

Hvað er það?

Skotveiðitengd ferðaþjónusta á sér ekki langa sögu hér á Íslandi en þó eru þó nokkrir aðilar eða fyrirtæki sem bjóða upp á slíka starfsemi (nokkur þeirra er t.d. að finna hér). Upplýsingar um skotveiðitengda ferðaþjónustu liggja á víð og dreif og fyrir áhugasama getur oft á tíðum verið erfitt að nálgast þær. Skotveiðar og starfsemi tengdum þeim fara aðallega fram utan háannar í ferðaþjónustu. Hérlendis er fremur litið á skotveiðar sem áhugamál en sem atvinnugrein og að allir hafi almennan rétt til þess að skjóta veiðibráð svo framarlega að þeir hafi til þess tilskilin leyfi. 

Hugtakið skotveiðitengd ferðaþjónusta er tiltölulega nýtt þó veiðar hafi verið stundaðar frá örófi alda.  Með skotveiðitengdri ferðaþjónustu er átt við þegar skotveiðimaður ferðast að heiman á önnur veiðisvæði, gjarnan erlendis, til þess að stunda skotveiðar.  Það er ekki skilyrði að hann þekki veiðisvæðin eða bráðina á þeim svæðum.  Félags- og/eða menningartengsl skotveiðimannsins við þau veiðisvæði eru misjafnlega sterk og fara væntanlega dvínandi eftir því sem hann ferðast lengra frá heimkynnum sínum.

Það geta verið margir fletir á veiðiferðamennsku umfram sjálfar veiðarnar, þar sem ýmsir menningar- og samfélagslegir þættir fléttist inn í upplifun veiðimannsins tengslum við veiðarnar. Þannig geti veiðimaðurinn upplifað t.d. einhvers konar arfleifð (e. heritage), ævintýri í tengslum við veiðina auk þess að upplifa náttúruna. Einnig hefur verið bent á að sú upplifun sem veiðimaðurinn sækist eftir er ekki endilega það að skjóta dýr heldur hafi upplifunin fleiri víddir sem eru samtengdar, sjálfstæðar og skarast í senn.

Sjálfbærar skotveiðar

Með vaxandi fjölda skotveiðimanna og breytingum í nýtingu auðlindarinnar með tilkomu ferðaþjónustunnar er aukin hætta á ofnýtingu á takmörkuðum auðlindum. Þetta hefur ákveðin vandamál í för með sér og getur leitt til ofnotkunar og hnignunar á villtum dýrastofnum ef ekki er gripið í taumana áður en það er um seinan. Það hefur því þótt ástæða að skoða skotveiðar og skotveiðitengda ferðaþjónustu í samhengi með sjálfbærni.

Í yfirlýsingu Evrópuráðsins um veiðar og líffræðilegan fjölbreytileika náttúrunnar er fjallað um sjálfbærar skotveiðar sem nýtingu villtra dýrastofna til lengri tíma litið án þess að gengið sé of nærri þeim. Þannig er þess gætt að veiðarnar hafi hvorki áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika náttúrunnar né hafi áhrif á möguleika dýrastofna til að endurnýjast eðlilega. Í yfirlýsingunni eru efnahagslegir og félagslegir þættir varðandi skotveiðar einnig teknir inn í jöfnuna.

 

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn