North Hunt

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Sala og markaðssetning

Mikill áhugi er á skotveiðitengdri ferðaþjónustu á Íslandi meðal sölu- og markaðsaðila í Evrópu ef marka má niðurstöður könnunar sem gerð var til að kanna markaðs- og framtíðarmöguleika skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á norðurslóðum. Jafnframt kom fram í könnuninni að þrátt fyrir þennan áhuga skorti söluaðila upplýsingar um hvað væri í boði í skotveiðum á Íslandi. Í könnuninni var spurt um fýsileika þess að selja skotveiðitengda ferðaþjónustu á Íslandi, Finnlandi, Svíþjóð, Skotlandi og Kanada.

Ísland kom ágætlega út í úr könnuninni sem gaf vísbendingar um hvaða tækifæri væru til staðar. Einnig kom í ljós að nauðsynlegt er að upplýsa söluaðilana betur um hvað er í boði hér á landi.

Helstu niðurstöður könnunarinnar á Íslandi má finna hér (á íslensku)

Niðurstöður könnunarinnar er að finna hér (á ensku)

 

Nánari upplýsingar um sölu og markaðssetningu (s.s. um samninga og endursölu á ferðapökkum) er að finna á ensku síðunni um sölu og markaðssetningu

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn