Allir sem stunda veiðar á villtum dýrum, öðrum en rottum og músum, sbr. lög nr. 64/1994, skulu afla sér veiðikorts hjá veiðstjórnunarsviði Umhverfisstofnunnar. Veiðikort veitir handhafa þess rétt til að stunda veiðar á villtum dýrum á Íslandi og í íslenskri efnahagslögsögu. Skotvopna- og veiðinámskeið eru haldin á vegum Umhverfisstofnunnar.
Öll fyrirtæki sem bjóða upp á pakkaferðir með eða án gistingar, þar sem skotveiði er innifalin, verða að hafa tilskilin leyfi frá Ferðamálastofu.
- Ef boðið er upp á pakkaferðir með eða án gistingar þar sem veiði er innifalin þá eru þeir leyfisskyldir. Ef ferðin nær yfir lengri tíma en daglengd (24 klst.) þá ber viðkomandi skipuleggjanda að hafa ferðaskrifstofuleyfi útgefið hjá Ferðamálastofu
- Ef ferðin er einungis daglengd þá ber þeim aðila sem skipuleggur ferðina að hafa ferðaskipuleggjendaleyfi gefið út hjá Ferðamálastofu
Sjá nánar:
Lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum
Reglugerð um veiðikort og hæfnispróf veiðimanna
Skotvopna – og veiðinámskeið
Lög um skipan ferðamála
Ferðaskipuleggjendur
Ferðaskrifstofur

