Þriðji fundur norrænna samstarfsaðila
Þriðji fundir allra samstarfsaðila í North Hunt var haldinn á Íslandi 15-17. apríl sl. Á fundinum var farið vel yfir stöðu allra verkþátta í hverju landi fyrir sig og teknar ákvarðanir um næstu skref. Tekið var vel á móti erlendu aðilunum á Egilsstöðum þar sem hópurinn dvaldi í góðu yfirlæti á Gistiheimilinu Egilsstöðum. Auk fundarhalda var hópnum boðið í móttöku hjá Þróunarfélagi Austurlands.
Einnig var farið í vettvangsferðir þar sem hópurinn naut austfiskrar gestrisni og menningar. Má þar nefna kynnisferð um firðina undir leiðsögn Emils Björnssonar auk glæsilegs kvöldverðar í Randulfssjóhúsi við Eskifjörð. Einnig var farið með hópinn í Mývatnssveit þar sem Gunnar Jóhannesson tók á móti honum og fór með honum um svæðið auk þess sem hópurinn skolaði af sér ferðarykið í Jarðböðunum. Síðasti fundardagurinn fór fram í Sveinbjarnargerði við Eyjafjörð.Samstarfsaðilarnir voru mjög ánægðir með fundinn og upplifanirnar í ferðinni. Erlendu aðilunum var tíðrætt um þau miklu tækifæri í skotveiðitengdri ferðaþjónustu hvað gæsina varðar, en á leið okkar um Austurland og Norðurland voru tún og akrar þaulsetin gæs.
Íslenski hópurinn vill færa öllum þeim sem komu að fundinum og ferð hópsins kærar þakkir fyrir gott samstarf og samveru.

