
© Lára Guðmundsdóttir
Rjúpnaveiðitímabilinu lauk í gær 30. nóvember en heimilt var að veiða rjúpu frá 1. nóvember fjóra daga vikunnar fimmtudaga,
föstudaga, laugardaga og sunnudaga eða sama fyrirkomulag og var á veiðunum í fyrra.
Rjúpnaveiðitímabilinu lauk í gær 30. nóvember en heimilt var að veiða rjúpu frá 1. nóvember fjóra daga vikunnar fimmtudaga,
föstudaga, laugardaga og sunnudaga eða sama fyrirkomulag og var á veiðunum í fyrra. Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur beint
þeim tilmælum til veiðimanna að stunda hófsamar og ábyrgar veiðar. Undanfarin ár hafa veiðimenn almennt tekið vel í þessi
tilmæli en til þess að tryggja sjálfbærar veiðar á rjúpu er nauðsynlegt að minnka veiðiálag á rjúpu miðað
við það sem það hefur verið á síðustu áratugum.
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur um áratuga skeið safnað rjúpnavængjum til þess að rannsaka aldurshlutfall í
rjúpnaafla. Vilja aðstandendur North Hunt-verkefnisins hvetja veiðimenn til þess að skila inn öðrum vængnum af öllum rjúpnaaflanum í
ár. Nánari upplýsingar um þetta verkefni má nálgast á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar Íslands.