Kynning meðal norskra nemenda
miðvikudagur 06.maí 2009 - Lestrar 12
Föstudaginn 24. apríl sl. voru hér á ferð 12 nemendur og einn kennari frá auðlindadeild háskólans í Norður Þrændalögum í Noregi. Háskóli þessi tengist Háskólanum á Akureyri ásamt nokkrum öðrum Norrænum háskólum í gegnum Nordnatur samstarfið. Íslenski hópurin kynnti North Hunt verkefnið fyrir nemendunum og spruttu upp líflegar umræður varðandi möguleika íslenskra ferðaþjónustuaðila í starfsgreininni og mikilvægi á góðri stjórnun auðlindarinnar.

