Fyrsti fundur íslenska rýnihópsins
þriðjudagur 17.mars 2009 - Lestrar 15
Fyrsti fundur íslenska rýnihópsins var haldinn á Akureyri fimmtudaginn 26. febrúar. Rýnihópurinn er umræðuvettvangur hagsmunaaðila um
þróun skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á Íslandi. Hlutverk hans er að varpa ljósi á mikilvæg sjónarmið og
aðkallandi verkefni við þróun skotveiðitengdrar ferðaþjónustu sem viðskiptatækifæris í dreifbýli sem byggir á hinum
þremur þáttum sjálfbærni.
Í hverju þátttökulandi starfandi rýnihópar til að hafa eftirlit með mikilvægi verkefnisins og til að standa vörð um hagsmuni
ólíkra hópa við þróun starfsgreinarinnar. Rýnihópurinn mun hittast samtals sex sinnum á verkefnatímanum. Á þessum fyrsta
fundi hópsins var farið yfir verkhluta North Hunt verkefnisins sem og verkefni rýnihópsins í framtíðinni. Í lok fundar voru umræður sem
byggðu á þremur spurningum:
1. Hvað felst í sjálfbærri skotveiðitengdri ferðaþjónustu?
2. Að hverju þarf að gæta við þróun sjálfbærrar skotveiðitengdrar ferðaþjónustu?
3. Í hverju felast hindranirnar/ágreiningsmálin sem tengjast þróun sjálfbærrar skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á Íslandi?
Fundurinn var vel sóttur og tóku allir aðilar virkan þátt í umræðum fundarins. Skipuleggjendur fundarins eru sammála um að fundurinn var vel heppnaður og komu fram ýmis sjónarhorn um skotveiði og ferðaþjónustu á Íslandi. Á næsta fundi rýnihópsins verður félagsleg sjálfbærni tekin til skoðunar.