
Átta erindi um skotveiðar og skotveiðitengda ferðaþjónustu voru flutt á málþinginu. Á myndinni má sjá fyrirlesarana í lok málþingsins
Um 30 manns tóku þátt í málþingi um skotveiðitengda ferðaþjónustu á Íslandi sem var haldið í
Háskólanum á Akureyri þann 13. desember sl. Yfirskrift málþingsins var „Skotveiðitengd ferðaþjónusta –
þróunarmöguleikar í dreifðum byggðum“ og voru þar kynntar niðurstöður þeirra rannsókna sem hafa verið gerðar
í tengslum við North Hunt á Íslandi.
Kynntar voru niðurstöður viðtalsrannsóknar um viðhorf til skotveiðitengdrar ferðaþjónustu, niðurstöður úttektar um
sjálfbærar skotveiða, útgjöld veiðimanna og efnahagsleg áhrif skotveiða á Íslandi. Auk þess voru erindi frá
þátttakendum rýnihóps og veiðiklasa verkefnisins á Íslandi þar sem fjölluðu um þróun skotveiðitengdrar
ferðaþjónustu út frá sjónarmiðum hagsmunaaðila. Guðbjörg H. Jóhannesdóttir atvinnu- og nýsköpunarráðgjafi
hjá Bændasamtökum Íslands fjallaði um sóknarfæri og nýsköpunartækifæri fyrir landeigendur í tengslum við
þjónustu við veiðimenn. Því næst talaði Elvar Árni Lund varaformaður Skotveiðifélags Íslands um áhrif
skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á veiði heimamanna. Sigríður Bragadóttir, Ferðaþjónustunni Síreksstöðum fjallaði
þar næst um sína reynslu af uppbyggingu ferðaþjónustu við veiðimenn, tilraunir landeigenda í Vopnafirði um stofnun félags landeigenda um
skotveiðihlunnindi á svæðinu. Að lokum talaði Sævar Guðjónsson hjá Ferðaþjónustunni Mjóeyri við Eskifjörð um
tækifæri og hindranir í uppbyggingu skotveiðitengdrar ferðaþjónustu og hvaða leiðir væri hægt að fara til að nálgast
markaði.
Í umræðum á málþinginu kom m.a. fram að þörf er á því að hagsmunaaðilar ræði saman um málefni
skotveiða og ferðaþjónustu og hafi samvinnu sín á milli þegar kemur að skipulagningu og þróun þessara mála.
Niðurstöður rannsóknanna, sem voru kynntar á málþinginu sem og
öll erindin er að finna hér á heimasíðu North Hunt.