North Hunt

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Velkomin(n) á heimasíðuna okkar

North Hunt verkefnið er hluti af stærra samnorrænu verkefni og fékk það styrk frá Norðurslóðaáætlun ESB (European Commission´s Northern Periphery Programme). Markmið Norðurslóðaáætlunar ESB eru m.a. að hvetja til nýsköpunar og aukinnar samkeppnishæfni í dreifbýli um leið og lögð er áhersla á sjálfbærni náttúru og samfélags. Þátttökuþjóðir í North Hunt eru Finnland, Svíþjóð, Ísland, Skotland og Kanada.  Í öllum NPP verkefnum er krafist þess að mótframlag komi frá heimamönnum, sérstaklega frá atvinnulífinu en ekki akademískum stofnunum eða stjórnvöldum.  Á þann hátt tryggir sjóðurinn aðild frumkvöðla og starfandi einkafyrirtækja að verkefnunum enda markmiðið að þróa vöru eða hugmynd sem eflir atvinnulíf á svæðunum og skilur eftir sig starfsemi sem eykur hagvöxt þeirra.

Nýjustu fréttir

Áhugi á skotveiðitengdri ferðaþjónustu meðal sölu- og markaðsaðila erlendis

Mikill áhugi er á skotveiðitengdri ferðaþjónustu á Íslandi meðal sölu- og markaðsaðila í Evrópu ef marka má niðurstöður könnunar sem gerð var til að kanna markaðs- og framtíðarmöguleika skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á norðurslóðum. Könnunin var gerð í tengslum við North Hunt verkefnið, sem er alþjóðlegt verkefni um þróun sjálfbærrar skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á jaðarsvæðum á norðurslóðum. Jafnframt kom fram í könnuninni að þrátt fyrir þennan áhuga skorti söluaðila upplýsingar um hvað væri í boði í skotveiðum á Íslandi.

Niðurstöður könnunarinnar er að finna hér (á ensku)

Lesa meira

Fyrsta North Hunt málstofan

Umeå í Svíþjóð

FÉLAGSLEG SJÁLFBÆRNI SKOTVEIÐITENGDRAR FERÐAÞJÓNUSTU Á NORÐURSLÓÐUM:  NORTH HUNT MÁLSTOFA 28.—29. SEPT. Í UMEÅ, SVÍÞJÓÐ

Fyrir hönd North Hunt verkefnisins bjóðum við ykkur velkomin á fyrstu North Hunt málstofuna sem haldin verður í Umeå, Svíþjóð dagana 28.-29. september næstkomandi.
Yfirskrift þessarar ráðstefnu er félagsleg sjálfbærni og áhrif hennar á uppbyggingu skotveiðitengdrar ferðaþjónustu.  Ráðstefnunni er skipt niður í fjóra hluta:  

  1. Félagsleg sjálfbærni skotveiðitengdrar ferðaþjónustu á norðurslóðum
  2. Sjálfbærni skotveiða og veiðiferðamennska
  3. Veiðiréttur og upplifun veiðimanna á eignarhaldi veiðilenda
  4. Umræður og niðurstöður

Málstofunni er ætlað að höfða til frumkvöðla í skotveiði og skotveiðitengdri ferðaþjónustu, sérstaklega frumkvöðla á norður-slóðum og annarra sem hafa áhuga á þessum málefnum eins og skotveiðimanna, landeigenda, rannsakendur, atvinnuráðgjafa og þeirra sem hafa umsjón með almennum veiðilendum.

Ef þið hafið frekari spurningar þá vinsamlegast snúið ykkur til Hjördísar Sigursteinsdóttur, netfang: hjordis@unak.is, sími: 460-8905.

Dagskrá málstofunnar er hægt að nálgast hér.


Þriðja fréttabréf komið út

Þriðja tölublað fréttabréfs North Hunt er komið út. í fréttabréfinu er meðal annars sagt frá fyrstu North Hunt málstofunni sem verður haldin í Umeå í Svíþjóð dagana 28.-29. september. Á ráðstefnunni verður fjallað um félagslega sjálfbærni og áhrif hennar á uppbyggingu skotveiðitengdrar ferðaþjónustu. Meðal annars efnis í  fréttabréfinu er umfjöllun um stöðu skotveiðitengdrar ferðaþjónustu í Finnlandi og um stóra alþjóðlega ráðstefnu um félagsvísindi í dreifbýli í Evrópu, sem haldin var í Vaasa í Finnlandi fyrir skemmstu. Þar var meðal annars ein málstofa eingöngu um sjálfbærar skotveiðar.

Fréttabréfið má nálgast á rafrænu formi hér


SJÁLFBÆRAR SKOTVEIÐAR - LEIÐIR TIL AÐ AUKA FJÖLBREYTNI STARFA Í DREIFBÝLI

Háskólinn í Vaasa í Finnlandi
Dagana 17.-21. ágúst sl. tóku nokkrir félagar í North Hunt hópnum þátt í málstofu um sjálfbærar skotveiðar í Vaasa í Finnlandi. Yfirskrift málstofunnar var Sjálfbærar skotveiðar  -  Leiðir til auka fjölbreytni starfa í dreifbýli.  Þessi málstofa var hluti af 23. alþjóðlegu ráðstefnunni um félagsvísindi í dreifbýli í Evrópu, Efling dreifbýlisins – samband samfélags og náttúru. Þátttakendur ráðstefnunnar voru á fimmta hundrað sem komu víðsvegar að úr heiminum og skiptust þeir niður á 39 málstofur. Lesa meira

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn